Nýr búnaður frá Veltak ehf., til hreinsunar og olíugreiningar í háþrýstivökvakerfum í tækjum og búnaði. Íslenskir Aðalverktakar HF. hafa tekið upp nýja stefnu varðandi umhirðu og tillitsemi gagnvart vökvakerfum í vinnuvélum fyrirtækisins. Markmiðið er að spara í viðhaldi, olíu innkaupum og betri nýtni tækja sinna, með minni frátöfum vegna bilana í vökvabúnaði. Til þessara verkefna hefur IAV valið vökvakerfa hreinsibúnað frá Triple – R / Véltak ehf.
Triple-R Sía – fyrir vinnuvélar, komið á flestar vélar IAV.
Triple –R sía gerð BU -100E tengt beint inn þrýstihlið allt að 400 bar/ retur beint í tanka
Fyrir verkstæði:
Triple-R Hreinsistöð með olíu greininga tölvu, sem skráir olíuhreinsun fyrir hvert tæki sem kemur á verkstæði og er net tengt við net fyrirtækisins. „Skráning á sögu tækis“.
Öll ný olía er hreinsuð niður í NAS 5-6
Staðall fyrir 300 bar vinnuþrýsting