Ásbjörn

Til Véltaks ehf Skip: Ásbjörn RE-50
Aðalvél : Stork Werkspoor 1450 KW
Eigandi : HBGrandi H.F. Reykjavík,Iceland.
Yfirvélstjóri: Sigurður Rúnar Sigurðsson
Ég hef nú tekið saman fyrir Véltak skýrslu um OGS 2 smurolíu/eim/skiljuna og reynslu okkar frá mars 2011 en OGS 2 var þá tekin í notkun .
|
|
Staða
|
Dagar á sjó
|
Smurolíukaup tunnur
|
Notkun ltr/dag
|
2010
|
|
31.12.2010
|
210,6
|
60
|
53,1
|
2011
|
|
31.12.2011
|
183
|
39
|
38,1
|
2012
|
|
11.9.2012
|
162,8
|
31
|
32,6
|

Mynd 1.
Olíunotkun fyrir OGS 2 53,1 l/24
Olíunotkun eftir OGS 2 32.6 l/24
Minnkun 20,5 ltr. 38.6%
( öll smurolíunotkun um borð er tölvukeyrð)
Eins og sést á mynd 1. hefur orðið umtalsverð breyting á smurolíunotkun eftir að OGS 2 var tekin í notkun ( sett niður mars 2011). eða 37,2%. Minni eyðsla smurolíu.
Eftir að OGS 2 var komin í notkun kom í ljós m.a. að gæði lofts í vélarúmi hafði aukist mikið og olíulykt minkað verulega ,ef það er komið í vélarúmið í dag finnst ekki þessi olíustybba sem áður var .
Áður voru lekar og olíusmit víða á aðalvél einkum við ventlalok, kasthjól, dælugír,og fl.þetta gerði það að verkum að loft í vélarúmi var töluvert olíumettað og allir hlutir í vélarúmi einkum rafalar, mótorar , þil loft, þaktir olíufilmu.Nú í dag hefur orðið mikil breyting hvað þetta varðar.
Öndun frá sveifarhúsi upp á dekk og pallur þar fyrir neðan var áður þakinn olíusora en er nú alveg hreinn í dag, þar sem öndunin er tekin í gegnum OGS-2.
Túrbína og skolloftkælir ættu að vera hreinni þar sem loftgæði hafa aukist verulega, ekki fullrannsakað en vísbendingar eru um að svo sé.
Tekinn var upp stimpill á sama tíma og OGS-2 var sett niður, við skoðun kom í ljós að lakkering var tekinn að myndast innan í slíf, áður vorum við búnir að skoða alla vélina í gegnum spíssagöt með skopesjá og vorum búnir að sjá lakkeringu á öllum slífum.
Í vor þurftum við að taka upp dexel vegna kælivatnsleka, lakkering á slífinni var minni en búast mátti við og gæti það verið vísbending um að lakkering mínnki við notkun OGS-2 einnig að lakkering fyrir OGS-2 eyðist
Almennt er reynslan af OGS-2 mjög góð og ég get vottað að þetta er tæki sem gerir gagn.
Smurolíunotkun mínnkar
Loftgæði aukast
Vinnuföt og vélstjórar lykta ekki af olíu
Vélarúm hreinna og notkun hreinsiefna minni.
Vísbending um að lakkering minnki við notkun OGS-2
Hægt að fylgjast með niðurblæstri (tíðnibreytir tölvuskráning)
Sveifarhús öndun upp á dekk (ekki lengur olíusora mengun)
Hægt að skilja vatn sem hefur komist í smurolíu.
OGS 2 er með alsjáfvirka stjórnun
Heilsuvernd fyrir vélstjóra.
. Viðhald ekkert og bilanir
Minna af olíusora í botni vélarúms sem þarf að koma í land
Sigurður Runar Sigurðsson
Yfirvélstjóri
 Ásbjörn vid Hörpuna
Ásbjörn RE-50 á leið til veiða. Tryggt að Harpan verði ekki fyrir mengun með notkun OGS-2
|